Frambjóðendur
-

1. sæti | Árni Jónsson
FRAMKVÆMDASTJÓRI KRYNGLUMÝRI FRÍSTUNDAMIÐSTÖÐ
Ég hef viðtæka reynslu af stjórnun og starfa í dag sem framkvæmdastjóri frístundamiðstöðvarinnar Kringlumýri hjá Reykjavíkurborg.
Áður hef ég verið forstöðumaður í Laugardalslaug, Grafarvogslaug og Árbæjarlaug, var um tíma íþrótta- og æskulýðsfulltrúi í Dalvíkurbyggð og hef verið framkvæmdastjóri í íþróttafélaginu Fylki.Í starfi mínu sem stjórnandi hef ég lagt á það áherslu að byggja upp vinnustaðamenningu sem einkennist af góðum samskiptum og að ég sem stjórnandi fari fyrir með góðu fordæmi.
Ég er giftur Hlín Ólafsdóttur Mosfelling, kennara og formanns Lúðrasveitar Mosfellsbæjar og eigum við saman 3 börn á aldrinum 15 – 26 ára.
Það verður að segjast að ég hef áhuga á mörgu en ber það helst að nefna tónlist, íþróttaáhorf, útivera / fjallgöngur, samvera með skemmtilegu fólki og að vera hluti af Sundkútunum í Lágafellslaug. -

2. sæti | Guðfinna Birta Valgeirsdóttir
MARKAÐSSTJÓRI
Ég starfa hjá viðburða- og hugmyndastúdíóinu Milk and Kleina og er jafnframt markaðsstjóri Iceland Innovation Week. Í starfi mínu vinn ég náið með skapandi fólki og tek þátt í að þróa hugmyndir og viðburði sem tengja saman samfélag, nýsköpun og menningu.
Ég sit einnig í stjórn Tónhyls og hef þar tekið virkan þátt í að styðja við íslenskt tónlistarlíf.
Ég er tveggja barna móðir og á þau með Stefáni Pálssyni. Fjölskyldan skipar stóran sess í lífi mínu. Í frítíma hef ég sérstaklega gaman af ferðalögum, samveru með fjölskyldu og að njóta lista og menningar.
-

3. sæti | Michele Rebora (Titti)
UMBÓTA- OG GÆÐASTJÓRI
Ég er stjórnmálafræðingur frá Háskólanum í Genova á Ítalíu og skulda bara lokaritgerðina í MPA í opinberri stjórnsýslu í Háskóla Íslands.
Hef starfað í gæða-, umhverfis- og öryggismálum frá 2006, lengst af sem ráðgjafi. Ég vinn núna sem umbóta- og gæðastjóri hjá Samey Robotics ehf.
Var gjaldkeri foreldrafélagsins leikskóla Reykjakot í um 10 ár (á fjögur börn…) og verið virkur í Ítölsku félagi á Íslandi. Ég er einn af stofnendum Vina Mosfellsbæjar og hef verið fulltrúi þeirra í nefndum bæjarins frá 2018.
Ég er fæddur og uppalinn í litlu þorpi rétt fyrir utan Genova á Ítalíu en hef búið í Mosfellsbæ síðan 2008.
Ég elska fellin í bakgarðinum og að geta komist í “óræktina” á fimm mínutum. Mér finnst líka æðislegt að taka kríu í vaðlauginni í Lágafelli, borða góðan mat, ferðast, hlæja …
-

4. sæti | Guðrún Elísa Sævarsdóttir (Gunna Lísa)
KENNARI
Ég er 42 ára, gift og þriggja barna móðir sem hefur mikla ástríðu fyrir menntun og fólki. Ég er menntuð í félagsfræði og kennslu með áherslu á kyn og jafnrétti og starfa sem umsjónarkennari í unglingadeild í Helgafellsskóla.
Ég hef kennt félagsfræði, heimspeki og kynjafræði við Menntaskólann að Laugarvatni og mun ég snúa þangað aftur í haust. Það sem heillar mig mest í starfi er að vinna með ungu fólki og velta fyrir mér hvernig og af hverju við sem manneskjur hugsum og hegðum okkur eins og við gerum.
Jafnrétti, menntun og umhverfismál standa mér nærri og ég nýt þess að taka þátt í samtali og þróun á þeim sviðum. Ég er gift Jakobi Má Rúnarssyni sem er fæddur og uppalinn í Mosfellsdalnum og fékk mig til þess að flytja í Mosfellsbæ, en upprunarlega er ég frá Sandgerði og heillaði smábæjarstemningin mig. Í Mosó er fólk hæfilega forvitið um náungann og er náungakærleikurinn miki
-

5. sæti | Þóranna Rósa Ólafsdóttir
SKÓLASTJÓRI
Ég er með MA próf frá Háskóla Íslands í Leiðtogi, nýsköpun og stjórnun auk B.Ed frá Kennaraháskóla Íslands.
Ég byrjaði í menntageiranum árið 1995 og hef verið skólastjóri frá árinu 2007. Lengst af var ég skólastjóri við Varmárskóla en er nú skólastjóri Rimaskóla. Ég hef setið í nokkur ár í stjórn Skólastjórafélags Reykjavíkur og frá hausti í Skólamálanefnd Skólastjórafélag Íslands.
Vinir Mosfellsbæjar treystu mér á síðast kjörtímabili að taka að mér sæti sem varaáheyrnarfulltrúi í fræðslunefnd Mosfellsbæjar því hjarta mitt slær fyrir skólamál í bænum.
Ég er gift og á tvo syni. Hef mikinn áhuga á umhverfi og útivist og veit fátt betra en að njóta þess sem Mosfellsbær hefur uppá að bjóða. Ég á ættir mínar að tekja til Mosfellssveitar en sjálf hef ég búið í Mosfellsbæ frá árinu 2003 og kann hvergi eins vel við mig og hér.
-

6. sæti | Katarzyna Krystyna Krolikowska
ÞJÓNUSTUFULLTRÚI
Verkfræðingur Maritime University in Poland Bókhaldsnám (Proment)
Við eigum að hugsa um Mosfellsbæ sem eina heild, eitt samfélag. Ný og fersk sýn á málefni íbúa og útlendinga í bænum okkar. Áætlun sem tekur mið af öllum þáttum samfélagsins og framtíðarsýn Mosfellsbæjar.
-

7. sæti | Kristinn Guðjónsson (Diddi)
RAFFRÆÐINGUR
-

8. sæti | Ólafur Jónas Sigurðsson
KENNARI OG KÖRFUBOLTAÞJÁLFARI
-

9. sæti | Andri Freyr Friðriksson
NEMI OG HORNAMAÐUR Í MEISTARAFLOKKI AFTURELDINGAR Í HANDBOLTA
-

10. sæti | Matthildur Freyja Árnadóttir
NEMI OG SUNDLAUGAVÖRÐUR
-

11. sæti | Leó Halldórsson
NEMI OG HORNAMAÐUR Í MEISTARAFLOKKI AFTURELDINGAR Í HANDBOLTA
-

12. sæti | Árni Magnússon
DEILDARSTJÓRI BARNASTARFS Í KRYNGLUMÝRI
-

13. sæti | Fabio La Marca
DEILDARSTJÓRI FARSÆLDAR OG UNGBARNASUNDKENNARI
-

14. sæti | Bríet Bjarnadóttir
-

15. sæti | Haukur Leo Senstius Árnason
NEMI
-

16. sæti | Stefán Pálsson
SÉRFRÆÐINGUR
-

17. sæti | Orri Grétar Valgeirsson
NEMI Í BYGGINGARFRÆÐI
-

18. sæti | Kristín Eva Olafsdottir
MARKAÐSSTJÓRI
-

19. sæti | Tómas Þorgeir Hafsteinsson
Sölumaður
-

20. sæti | Lárus Arnar Sölvason
HÁRSNYRTIR
-
21. sæti | Fanney Valgarðsdóttir
GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR OG ELDRI BORGARI
-

22. sæti | Páll Kristjánsson
HNÍFASMÍÐUR